15. október 2026
Ný stjórn kjörin á aðalfundi
Ragnheiður Sölvadóttir var endurkjörin formaður og tveir nýir stjórnarmenn bættust í hópinn.
Aðalfundur Andblæs var haldinn í sal félagsins og sóttu hann um sjötíu félagar. Ragnheiður Sölvadóttir var endurkjörin formaður til tveggja ára.
Á fundinum var samþykkt að árgjald yrði óbreytt á næsta ári og að félagið setti aukinn kraft í þjónustu við félaga á landsbyggðinni.