Fræðslukvöld: Að lifa með langvinna lungnateppu
Lungnalæknir og sjúkraþjálfari fara yfir það nýjasta í meðferð langvinnrar lungnateppu og svara spurningum úr sal.
Kvöldið er ætlað fólki með sjúkdóminn og aðstandendum. Gott aðgengi er að salnum og hægt er að fylgjast með í streymi; hlekkur berst með staðfestingunni.
Innifalið
- Erindi lungnalæknis og sjúkraþjálfara
- Kaffi og meðlæti
- Upptaka send eftir á